mánudagur, 30. apríl 2012

MYNDATAKA - ALLIR FLOKKAR - SKYLDUMÆTING


Það verður myndataka af öllum flokkum í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma).

Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.

SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING! 
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING. 


Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verður óvænt uppákoma sem enginn ÍRingur vill missa af

Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR

miðvikudagur, 28. mars 2012

Síðasti leikur 3.fl. karla á tímbilinu - Austurberg kl.20:20

ÍR : Haukar í Austurbergi fimmtudagskvöld kl.20:20
Þetta er síðasti leikur strákanna okkar í 3. flokk á þessu tímabili og jafnframt síðasti leikur 6 leikmanna með flokknum þar sem þeir færast upp í 2. flokk á næsta tímabili. Leikmenn 3. flokks: Bogi, Friðjón, Gabríel, Hinrik og Kristinn.  Leikmennirnir sem eru að kveðja 3. flokk eru: Birkir, Guðfinnur, Hilmar, Ingi, Magnús og Sveinn.
Mætum í Austurberg og styðjum við bakið á strákunum okkar sem eru framtíð ÍR, sýnum að við kunnum að meta þá. -Myndasíða 3fl.- -Bloggsíða 3fl.- facebook

fimmtudagur, 22. mars 2012

Allir að mæta á leik ÍRinga og Víkinga föstudag kl.19:30

Mikilvægur leikur fyrir okkur öll sem tengjast ÍR handboltanum, nánar um leikinn >>HÉR<< Allir að mæta í hvítu og bláu. Grillið opið á milli kl.18:00 og 19:00 hamborgari + gos + aðgangur kr. 500- fyrir kl. 19:00.
Hefðbundin miðasala eftir kl. 19:00 ókeypis aðgangur fyrir 16 ára og yngri.
Siggi á flugi hátt yfir Víkingum

mánudagur, 27. febrúar 2012

Nú styttist í Akureyraferð hjá strákunum. (2.- 4. mars)

Næsta föstudag 2. mars flúgja strákarnir norður. Mæting á Reykjavíkur flugvöll kl. 16:00, vélin fer í loftið kl. 16:45. Flogið heim sunnudagskvöldið 4. mars.
Finnbogi þjálfari fer einn með strákunum norður. Gist verður í gistiheimilinu Stórholti.

Fyrsti leikurinn er í KA heimilinu föstudaginn 2. mars kl. 21:30 á móti KA2
Annar leikurinn er í Síðuskóla laugadardaginn 3. mars kl. 15:30 á móti Þór/KA
Þriðji leikurinn er í Síðuskóla sunnudaginn 4. mars kl. 12:00 á móti Þór/KA

Strákarnir í 3. flokk. Janúar 2012 í Austurbergi.
Þeir sem fara norður: Birkir, Bogi, (Friðjón), Gabríel, Garðar, Guðfinnur, Hilmar, Hinrik, Ingi, (Ingólfur) Kristinn, Magnús, Sveinn og Finnbogi þjálfari.

Finnbogi: 6610071 - Þorgeir: 8934350